um okkur
Flúrlampar ehf
Fyrirtækið:
Flúrlampar ehf var stofnað árið 1977 en á upprunalega tengsl við hafnfirska fyrirtækið Rafha. Stofnendur Flúrlampa störfuðu þar og lýsingahluti framleiðslu Rafha var yfirtekinn þegar Rafha var lagt af. Jóhann Lúðvík Haraldsson keypti svo reksturinn af stofnendunum árið 2004.
Framleiðsla – Heildsala – Smásala – Þjónusta
Sérstaða okkar byggist að stóru leiti á getunni til að smíða lampa fyrir ólíkar aðstæður. Við smíðum staðlaðar útfærslur, en erum mikið til í sérsmíði og vinnur fyrirtækið náið með hönnuðum, arkitektum, rafverktökum og verkfræðingum við þróun úrlausna fyrir lýsingu. Félagið flytur inn íhluti í eigin framleiðslu en við bjóðum einnig, í heildsöldu og smásölu, mikið úrval íhluta og varahluta í lampa. Megin uppistaða smíða- og forritunarverkefna eru lausnir fyrir stórar byggingar svo sem skóla, íþróttahús, verslunarmiðstöðvar, verslanir, skrifstofuhúsnæði, gróðurhús, gripahús, skip, banka, hjúkrunarheimili og ýmsar stofnanir og heimili.
Í verslunarrými okkar vex úrvalið jafnt og þétt, t.d af ljósaperum, ljósum, Led borðum, kösturum og brautum ofl ofl. Flúrlampar eru líka með öfluga viðgerðarþjónustu, dufthúðun og forritara á DALI ljósastýringum.
Þjónusta – Þekking – Reynsla - Ráðgjöf:
Starfsemin skiptist upp í fjögur meginsvið, framleiðslu á lömpum, innflutning á varahlutum og fullbúnum vörum, heildsölu/smásölu og tæknideild sem sérhæfir sig í Dali ljósastýringum og annarri þjónustu og ráðgjöf.
HEIMILiSFANG
SÍMANÚMER
NETFANG
OPNUNARTÍMI
Föstud 8:00-15:30
OPNUNARTÍMI
OPNUNARTÍMI
Almennt
Lampar.is áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Þetta á einnig við ef um villur í reiknireglum vefverslunnar eiga sér stað.
Greiðslufyrirkomulag:
Tekið er á móti greiðslum með Debit- og Kreditkortum í gegnum öruggt greiðslusvæði Valitor þar sem kortanúmer eru dulkóðuð. Tekið skal fram að Lampar.is geymir ekki né tekur á móti kortanúmerum, allar slíkar upplýsingar fara í gegnum öruggt greiðslusvæði hjá viðurkenndum þjónustuaðila. Hægt er að greiða með Pei og Netgíró. Einnig er hægt að millifæra í gegnum banka/heimabanka. Ef viðskiptavinur velur að greiða með millifærslu er mikilvægt að senda kvittun um greiðslu í tölvupósti á lampar@lampar.is. Ef kvittun berst ekki í tölvupósti getur afreiðslutími lengst.
Afhending vöru
Reynt er eftir fremsta megni að afgreiða öll kaup næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun starfsmaður senda tölvupóst og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Hægt er að sækja vörur til okkar að Reykjavíkurvegi 66. eða velja flutningsaðila, t.d Íslandspóst, Flytjanda eða Icelandair Cargo og gilda þá afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmála umbeðins flutningsaðila um afhendingu. Lampar.is ber samkvæmt þeim enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Lampar.is og þar til hún berst viðtakanda er tjónið á ábyrgð flutningsaðila enda um skráðan flutning að ræða, nema kaupandi biðji um annað.
Uppgefinn afhengingartíma verður ávallt reynt að halda nema ef svo ber undir að varan sem keypt er sé ekki til á lager vegna villu í hugbúnaði, nær það til en einskorðast ekki við villur í birgðarhaldi, hugbúnaðarvillu, vefþjónavillu, ef svo ber undir þá mun varan vera afhend við fyrsta hentuga tækifæri þó ekki skemur en að 3 virkum dögum
Skilafrestur
Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Athugið að ekki er hægt að skila sérmíðaðri eða sérsniðinni vöru. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.
Gölluð vara
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við kostnað við að senda nýja vöru til viðskiptavinar. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.
Netverð
Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara. Tilboð í vefverslun gilda í sumum tilfellum eingöngu fyrir vefverslun.
Skattar og gjöld
Öll verð í netversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.
Sendingarkostnaður
Sendingarkostnaður er reiknaður útfrá gjaldskrá valins flutningsaðila með tilliti til áfangastaðar og fjölda vara, stærð þeirra og þyngd.
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
Notkun á persónuupplýsingum
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum
Varnarþing
Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans, skal það rekið fyrir íslenskum dómstóli.
Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 byrja að líða er móttaka vöru á sér stað.